Um okkur
Að baki stofnun Súrar Míur var einföld hugmynd: að færa Íslandi virkilega góðar súrar gúrkur.
Það sem byrjaði sem lítið verkefni varð fljótt að ástríðu fyrir því að fá hvert smáatriði rétt, frá því að velja staðbundið hráefni til að ná fullkomnu jafnvægi milli stökkleika, sýrustigs, og bragðs. Gúrkurnar okkar eru ræktaðar í íslenskum gróðurhúsum með jarðvarma, ásamt fersku dilli frá VAXA, sjávarsalti frá Saltverki, og hreinu íslensku vatni.
Hver sending er nýlöguð, pikklað, og geymd í kæli til að varðveita stökka áferð og ferskt bragð. Með tímanum dýpkar bragðið, en markmiðið er alltaf það sama: súr gúrka sem er hrein, í jafnvægi og erfitt að hætta að borða.
Hjá Súrum Míum höldum við hlutunum einföldum og leggjum áherslu á gæði, gott hráefni, og vandað ferli.
Mia Schwartz, Stofnandi